ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Breyting á verðskrá fyrir dreifingu og flutning raforku

Frá og með 1. ágúst 2018 verður sú breyting á verðskrá fyrir dreifingu og flutning raforku hjá RARIK að við bætast tveir verðskrárliðir við þá taxta sem fyrir eru og hafa þeir heitin VA710 og VA730.

Breytingin er ætluð notendum sem kaupa á 11 kV háspennu eða hærri, eru með aflnotkun yfir 2 MW og 7.000 tíma ársnýtingu eða meira. Þá þurfa notendur að uppfylla 14 GWh lágmarks kaupskyldu á ári. Taxtarnir eru í boði í allt að 10 km frá afhendingarstað Landsnets.

 

Fyrir notkun á töxtum þessum eru sendir út reikningar fyrir áætlaða notkun í mánaðarbyrjun (byggt á kaupskyldu) og uppgjörsreikningar mánaðarmótin á eftir.

 

Samkvæmt reglugerð byggðri á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku nr. 98/2004 með síðari tíma breytingum, teljast viðskiptavinir sem þessir ekki til almennra notenda og eiga því ekki rétt á dreifbýlisframlagi, þrátt fyrir að vera með notkun í skilgreindu dreifbýli.

Verðskrá nr. 24

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar