Orkustofnun hefur ákveðið lækkun á dreifbýlisframlagi til almennra notenda á dreifiveitusvæði RARIK í dreifbýli úr 2,15 kr/kWh í 1,8 kr/kWh frá 1. apríl 2018. Frá sama tíma hafa rafhitaniðurgreiðslur verið hækkaðar sem nemur sömu upphæð.
RARIK hefur því gert breytingar á verðskrá sinni frá og með 1. apríl vegna lækkunar á umræddu dreifbýlisframlagi. Breytingin hefur í för með sér hækkun á dreifikostnaði til annarra nota en rafhitunar um sem nemur 0,35 kr/kWh.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15