Háskólanemar höfðu mikinn áhuga á að kynna sér starfsemi RARIK á Framadögum alþjóðlegu stúdentasamtakanna AIESEC sem haldnir voru í Háskólanum í Reykjavík í gær. Það voru þau Kristín Inga Arnardóttir, Líney Sveinsdóttir, Árni Freyr Ársælsson og Jón Atli Jóhannsson sem svöruðu greiðlega spurningum nemenda á bás RARIK og höfðu nóg að gera.
Framadagar eru haldnir árlega og er markmið þeirra að gefa háskólanemum tækifæri til að kynna sér fyrirtæki og fjölbreytta möguleika á sumarstörfum, framtíðarstörfum eða verkefnavinnu hjá þeim. Um leið eru Framadagar góð leið fyrir fyrirtækin til að hitta og eiga opið samtal við hugsanlega framtíðarstarfsmenn.
Fyrirtækin og stofnanirnar sem tóku þátt í Framadögum í ár voru af ýmsum toga og alls staðar að úr atvinnulífinu. Því gafst þarna gott tækifæri fyrir nemendur til að kynna sér ákveðinn þverskurð af íslensku atvinnulífi og fræðast milliliðalaust um starfsemi fyrirtækjanna.
Nemendur voru hvattir til að skoða vefsíðu Framadaga en þar var að finna stutta kynningu á hverju fyrirtæki og svör þeirra við spurningum um vinnuumhverfi og þau tækifæri sem standa til boða hjá viðkomandi fyrirtæki og hvaða bakgrunn starfsmenn þess hafa. Okkar fólk átti gott spjall við áhugasama nemendur á Framadögum og hvatti þá til að skoða vefsíðu RARIK og kynna sér starfsemi fyrirtækisins enn frekar þar.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15