Óvissuástandi vegna úrkomu og vatnavaxta á Suðaustur og Austurlandi var aflýst í vikunni. Tvær truflanir urðu í kerfi RARIK á á meðan á þessu stóð. Strengur slitnaði í Fljótsdal 24.september og þann 27.september gróf undan stæðu í línu í Berufirði. Miklu skipti góð samvinna við þá aðila sem unnu að björgunaraðgerðum, ekki síst við Vegagerðina og Almannavarnir. Þegar vegir og varnargarðar eru rofnir til að bjarga mannvirkjum, geta rafstrengir og ljósleiðarar sem eru niðurgrafnir orðið fyrir hnjaski ef ekki er gætt að.
Að sögn Sigurjóns Gunnarssonar verkstjóra RARIK á Höfn í Hornafirði,er mikla reynslu hægt að draga af svona atburðum og að þessu sinni stendur upp úr hvernig við staðsetjum búnað okkar í framtíðinni þar sem búast má við miklum flóðum.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15