Stofnanir, fyrirtæki og fleiri aðilar geta þurft gögn frá Rarik til úrvinnslu fyrir hvers kyns verkefni sem fyrirtækin vinna áfram með eigin hugbúnaði.
Hér gefst fagaðilum kostur á að sækja gjaldfrjálst gögn um dreifikerfi Rarik, hvort sem það er fyrir rafmagn eða hitaveitu. Í þeim er að finna landfræðilegar upplýsingar t.d. um lagnaleiðir jarðstrengja og loftlína, staðsetningu aðveitu- og aflstöðva eða hitaveitulagnir. Landfræðileg gögn um rafdreifikerfi Rarik eru til frá 1987 í Netbas - gagnagrunni (Powell) og hitaveitukerfi frá 2019. Rarik vinnur einnig með AutoCad, MicroStation og ArcGis.
Nákvæmni gagna er ekki nægileg til að hægt sé að hefja framkvæmdir á lagnarsvæðum á grundvelli þeirra. Þeir sem hyggja á framkvæmdir eru hvattir til að leita til Rarik til að fá nákvæmar upplýsingar um legu og ef með þarf getur Rarik miðað út raf- eða hitaveitulagnir framkvæmdaaðilum að kostnaðarlausu.
Til að ná í gögn þarf að sækja um hér fyrir neðan með því að velja WMS þjónustu. Fylla þarf út alla reiti umsóknareyðublaðsins og samþykkja skilmála.
Við minnum einnig á að hægt að nálgast allar handbækur Rarik hér á vefnum.
Kerfi Rarik tekur stöðugum breytingum vegna nýrra framkvæmda. Gögn sem afhent eru í gegnum WMS þjónustu eru uppfærðar daglega samhliða gagnavinnslu.
Með WMS þjónustu er unnt að nýta Rarik gögn á innri kortasjá viðkomandi fyrirtækisins eða nota vefslóð til að færa gögn sem undirlag í CAD forritum (AutoCad og MicroStation býður t.d. upp á slíka þjónustu) eða ArcGis kerfi.
Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14