Ef þú vilt flytja, stækka, aftengja eða endurtengja heimæð, kynntu þér þá viðeigandi gátlista og áður en umsókn er útfyllt.
Allar breytingar á heimæðum þarf að sækja um rafrænt í gegnum umsóknarvef Rarik. Áður en þú fyllir út umsókn um breytingu er gott að þú kynnir þér hvernig ferlið gengur fyrir sig og hvaða upplýsingar þú þarft að hafa tilbúnar. Mikilvægt er að skoða gátlista fyrir umsóknina. Ef umsókn er ekki rétt fyllt út eða inniheldur rangar tæknilegar upplýsingar getur það orsakað tafir á afhendingu og haft í för með sér óþarfan viðbótarkostnað fyrir þig.
Aftenging/uppsögn
Endurtenging
Aukamælir
Vetrarálag jarðvegsframkvæmda
Jarðvegsvinna að vetri til er bæði erfiðari og kostnaðarsamari en á sumrin vegna ýmissa þátta, t.d. frosts í jörðu, snjóalaga, veðurs sem tafið getur framkvæmdir og stutts birtutíma. Því bætist viðbótargjald ofan á fastan kostnað vegna heimlagna yfir vetrartímann. Frá og með 23. október og til 1. apríl bætast 7.500 krónur m.vsk. ofan á hvern lengdarmetra sem Rarik þarf að leggja í jörð utan lóðamarka viðskiptavinar. Um jöfnunargjald er að ræða fyrir allt landið til að jafna út þann kostnaðarauka sem fellur til vegna ofangreindra ástæðna. Aukakostnaður getur orðið verulegur og er í mörgum tilfellum mun hærri en sem nemur þessu álagi. Við hvetjum viðskiptavini, sem eiga þess kost, til að seinka vinnu við heimtaugar fram yfir 1. apríl til að spara mögulega óþörf útgjöld og sækja tímanlega um heimlagnir fyrir sumartímann.
Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14