Áður en þú tilkynnir tjón:
- Gefðu þér tíma. Ekki er nauðsynlegt að tilkynna tjón samdægurs. Betra er að gefa sér tíma og fullvissa sig um heildartjón sem truflun hefur valdið og senda eina heildartilkynningu.
- Kannaðu hvort öryggi í rafmagnstöflu séu slegin inn (allir rofar í sömu stöðu).
- Ef þú ert ekki viss um heildartjón vegna rafmagnsleysis eða -truflana er gott að fá fagaðila til að aðstoða við að meta tjónið.
- Sendu okkur eina tilkynningu um tjónið með öllum upplýsingum. Ef þú hefur áður sent inn tilkynningu er gott að taka það fram svo við getum sameinað tilkynningarnar við afgreiðslu.
- Fylltu út tilkynningaformið hér fyrir neðan.
Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar eru að finna í stefnu okkar um meðhöndlun persónuupplýsinga sem útskýrir hvernig við söfnum, notum, miðlum og verndum persónuupplýsingar viðskiptavina og starfsmanna.