ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Pappírslaus viðskipti

RARIK starfar eftir stefnu í umhverfis- og loftslagsmálum og leitumst við þannig við að draga úr óæskilegum áhrifum starfseminnar á náttúruna. Eitt þeirra verkefna sem heyrir undir loftslagsmálin er að draga úr kolefnislosun og það gerum við meðal annars með því að draga úr pappírsnoktun.

Við munum því, í samræmi við stefnu okkar, hætta mánaðarlegri reikningaprentun þann 1. mars næstkomandi nema viðskiptavinir óski sérstaklega eftir prentuðum reikning.

 

Engin breyting er á því að kröfur eru sendar í netbanka eða til greiðslukortafyrirtækja ef um kortaviðskipti er að ræða.

 

Bent er á að á Mínum síðum á vef RARIK, er hægt að nálgast reikninga og prenta.

 

Prentað eintak frá RARIK

Þeir viðskiptavinir sem óska sérstaklega eftir að fá prentaða reikninga póstlagða frá RARIK þurfa að fara inn á Mínar síður. Þegar þangað er komið má sjá aðgerðarhnapp hægra megin við nafnið þitt. Þar er farið í „Mínar upplýsingar“ og valið „Greiðsluseðill í prentun“. Framvegis munu þá reikningar berast í bréfpósti.

 

Seðilgjald kr. 326 með VSK er lagt á alla prentaða reikninga.


Ef þú þarfnast aðstoðar við að halda áfram að fá prentaða reikninga, má leysa málið í gegnum síma. Þjónustuverið okkar tekur með ánægju á móti símtölum í síma 528 9000. Einnig má senda tölvupóst á rarik@rarik.is.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar