ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Vegna nýtingarleyfis í Ölfusdal

Í fjölmiðlum fyrir liðna helgi var fjallað um áform Orkuveitu Reykjavíkur (OR), sveitarfélagsins Ölfus og Títan um að sækja sameiginlega um rannsóknarleyfi á grundvelli fyrirhugaðs samstarfs um nýtingu jarðhita í Ölfusdal.

Fréttirnar kölluðu á sterk viðbrögð hjá nágrönnum Ölfuss í Hveragerði en jafnframt komu þær okkur hjá RARIK og dótturfélögum okkar Orkusölunnar og Sunnlenskrar orku í opna skjöldu, enda hefur síðastnefnda félagið varið umtalsverðum fjármunum og vinnu í rannsóknir á nýtingu jarðvarma á svæðinu allt frá árinu 1998. Sunnlensk orka sem upphaflega var stofnuð af RARIK og sveitarfélögunum Ölfusi og Hveragerði varð síðar dótturfélag Orkusölunnar ehf. Samkvæmt þeim rannsóknum sem farið var í þá reyndist verulegur jarðhiti vera í Ölfusdal en þó sérstaklega í Grændal. Ekki fékkst á þeim tíma heimild fyrir lagningu vegaslóða í Grændal og því var ekki hægt að hefja þar rannsóknir með tilraunaborunum. Grændalur er nú í verndarflokki rammaáætlunar.

 

Sunnlensk orka hefur lagt mikla vinnu og fjármuni í undirbúning og rannsóknir á svæðinu og enn eru áform um að nýta jarðvarma í Ölfusdal við Hveragerði og þá í náinni samvinnu við sveitarfélögin Ölfus og Hveragerði, en Orkusalan, sem er í eigu RARIK, selur stórum hluta íbúa Ölfuss og Hveragerðis rafmagn. Til að  koma þessu í framkvæmd lagði Sunnlensk orka inn nýja umsókn um nýtingarleyfi 6. júní sl. og bíður sú umsókn afgreiðslu Orkustofnunar. Fyrirtækið lítur svo á að þótt það hafi á undanförnum árum þurft að bíða eftir afgreiðslu hjá stjórnsýslunni til frekari rannsókna, fyrst vegna vinnu við rammaáætlun og síðan vegna vinnu við löggjöf og leyfisveitingar, þá réttlæti það ekki að umsóknir þess um rannsóknar- og nýtingarleyfi séu settar til hliðar og aðrir séu teknir fram fyrir.

 

Að lokum er rétt að árétta að skipting vinnslusvæða við Ölkelduháls og Ölfusdal/Grændal sem ákveðin var af landbúnaðarráðherra á sínum tíma var ætlað að liggja til grundvallar væntanlegum rannsóknar- og/eða nýtingarleyfum samkvæmt lögum. Að beiðni ráðherra var Orkustofnun fengin til að framkvæma uppskiptingu á svæðinu þannig að til yrðu tvö jarðhitasvæði þar sem að vinnsla á öðru þeirra hefði ekki áhrif á hitt. Niðurstaðan sem Orkustofnun skilaði til ráðherra var þannig að RARIK/Sunnlensk orka myndi fá Ölfusdal/Grændal en Hitaveita Reykjavíkur Ölkelduháls. Í ljósi þess vekur það nokkra furðu að Orkuveita Reykjavíkur skuli núna ætla sér að sækja um rannsóknarleyfi í Ölfusdal.

 

Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri RARIK

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar