Þegar nýr viðskiptamaður tekur við sem greiðandi af ákveðnum mælum er mikilvægt að það sé tilkynnt tímanlega til RARIK. Við flutning er nauðsynlegt að lesið sé af mælum svo uppgjör geti farið fram við þann sem flytur á brott. Viðskiptavinur getur í flestum tilvikum lesið sjálfur af mæli og skráð álestur á formið hér að neðan. Ef vafi er um áreiðanleika álesturs er rétt að hafa samband við þjónustuver RARIK í síma 528 9000 eða með tölvupósti á netfangið rarik@rarik.is.
Dagsetning álestra skal vera sú sama og dagsetning flutningstilkynningar. RARIK áskilur sér þriggja daga frest til að vinna úr flutningstilkynningunni.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15