ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Virkjanir

Virkjanir frá 12 kW-10 MW mega tengjast raforkukerfi landsins um kerfi dreifiveitu eins og RARIK. Í dag eru 44 virkjanir af ýmsum stærðum og gerðum tengdar dreifikerfi okkar. Uppsett afl þeirra nemur í heild um 74 MW. 

Áður en framkvæmdir við virkjanir hefjast þarf nýr virkjunaraðili að hafa samband við RARIK og kanna hvort mögulegt er að tengja virkjun af fyrirhugaðri stærð við dreifikerfið á viðkomandi stað. Hugsanlega þarf að ráðast í styrkingu kerfisins svo það sé hægt og getur það haft áhrif á tengikostnað. Í kjölfarið er gerður tengisamningur milli virkjunar og RARIK um tenginguna en eftir það er unnt að hefjast handa við lokaundirbúning verkefnisins. Þegar hönnun er lokið er hægt að gera samrekstrarsamning virkjunar og RARIK og hefja framkvæmdir.


Virkjanir sem tengdar eru dreifikerfinu greiða fast árlegt gjald fyrir tenginguna skv. verðskrá RARIK fyrir innmötun raforku, sem háð er stærð.  


Vegna hagræðis sem virkjunin skapar dreifiveitunni með lækkun flutningsgjalda fá virkjanir undir 300 kW síðan árlega greiðslur sem nema lækkun úttektar RARIK í afhendingarstað Landsnets. Þessar greiðslur fara hlutfallslega lækkandi með stærð (sjá verðskrá hér fyrir neðan). Þá þarf virkjunaraðili einnig að greiða tengigjald í upphafi, en það er háð m.a. tilkostnaði vegna tengingarinnar. 

 

Skjalasnið tengiferilsins:


1. Fyrirspurn

Virkjunaraðili fyllir út fyrirspurnarform fyrir tengingu nýrra virkjana og sendir til RARIK. Gott er að láta loftmynd eða kort sem sýnir staðsetningu stöðvarhúss og drög að orkuvinnsluáætlun fylgja með.

Sérfræðingar RARIK kanna hvort mögulegt er að tengja virkjun af fyrirhugaðri stærð við dreifikerfið á viðkomandi stað auk þess að áætla tengikostnað gróflega. 
Hugsanlega þarf að ráðast í styrkingu kerfisins og getur það haft áhrif á tengikostnað.  
 
Sé svar RARIK jákvætt er viðskiptavini í framhaldi boðið að gera Tengisamning, sem er tímabundinn samningur til 24 mánaða.

 


2. Tengisamningur

Vilji virkjunaraðili halda áfram með verkefnið, er gerður tengisamningur við RARIK (sjá meðfylgjandi sýnishorn).   
Samningurinn er tímabundinn til tveggja ára og er án frekari skuldbindinga af hálfu beggja aðila ef ekki verður af virkjunaráformum.   
 
RARIK mun gera ráð fyrir verkefninu í sínum áætlunum en ekki hefja frekari vinnu fyrr en virkjunaraðili hefur staðfest að af verkefninu verði og undirritað Samrekstrarsamning


3. Skuldbinding

Í þeim tilfellum þar sem þarf að fara í framkvæmdir, getur virkjunaraðili óskað eftir því að RARIK hefji framkvæmdir og/eða panti inn búnað áður en samrekstrarsamningur er kláraður.  
 
Þetta er háð samþykki RARIK, en innkaup og framkvæmdir hefjast ekki fyrr en greiðsla og/eða bankaábyrgð vegna tengigjalds hefur borist frá virkjunaraðila.  
 
Mikilvægt er að hafa í huga þegar tímaáætlun er sett fram að pantanaferli búnaðar getur tekið allt að 9-12 mánuði. Fyrir stærri virkjanir getur ferlið tekið enn lengri tíma, eða allt að 24 mánuði.   


4. Samrekstrarsamningur

Í lok þessa skrefs er samrekstrarsamningur undirritaður. 
 
Samrekstrarsamningur er skuldbindandi af hálfu beggja aðila og er gerður þegar virkjunaraðili hefur fengið virkjunarleyfi.

 
Áður en samrekstrarsamningur er undirritaður skilar virkjunaraðili inn til RARIK ýmsum gögnum sem RARIK síðan nýtir til að gera nákvæmari greiningar og endanlegt tilboð um tengigjald. Þar sem RARIK þarf að stofna til kostnaðar vegna verkefnisins er sett upp greiðsluáætlun vegna tengigjalds.

 

Meðal þeirra gagna sem þarf að skila eru:

  • Uppfærð fyrirspurn vegna virkjunarinnar
    Málstærðir rafala
  • Uppfærð orkuvinnsluáætlun
  • Einlínumynd af virkjun og tengingu við dreifikerfið
  • Tímaáætlun
  • Virkjunarleyfi
  • Ábyrgðarmaður
     
    Tímaáætlun virkjunaraðila er háð samþykki RARIK, þar sem samræma þarf framkvæmdir beggja aðila. 

5. Framkvæmdir

Á þessu stigi hefjast framkvæmdir.

 

RARIK setur upp tímalínu út frá verkáætlun virkjunaraðila. Allar breytingar á tímaáætlun þarfnast samráðs við starfsfólk RARIK, þar sem ný tímasetning um áætlaða tengingu virkjunar gæti stangast á við önnur verkefni hjá RARIK.    


6. Gangsetning til rekstrar

Þetta er lokaskrefið áður en virkjunin fer í hefðbundinn rekstur hjá RARIK. 
 
Eftirfarandi skjöl, skoðanir og leyfi þurfa að vera til staðar auk gangsetningaráætlunar virkjunaraðila:

Skoðunarskýrsla skoðunarstofu

Staðfesting ábyrgðarmanns á afgreiðslu athugasemda skoðunarmanns

Staðfesting sölufyrirtækis

Prófunaráætlun virkjunaraðila

Prófunarskýrsla vegna eyjareksturs

Prófunaráætlun virkjunaraðila

Prófunarskýrsa virkjunaraðila
 
Sérfræðingar RARIK sjá um að klára verkefnið ásamt tilheyrandi prófunum í góðri samvinnu við virkjunaraðila áður en virkjunin fer í hefðbundinn rekstur.   
 
Í lok þessa skrefs er virkjunin gangsett til rekstrar á kerfum RARIK. 
 
Prófanir vegna eyjakeyrslu:
Prófa og staðfesta þarf getu virkjana yfir 1 MW til eyjakeyrslu með virkniprófun.   


Gátlisti tengiferils

Gátlisti tengiferils


Samrekstrarsamningur fyrir virkjanir undir 100 kW

Samrekstrarsamningur fyrir virkjanir undir 100 kW


Eigin notkun virkjunar

Eigin notkun virkjunar


Eyjarekstur virkjunar

Eyjarekstur virkjunar


Mönnun og vaktir fjarstýrðra virkjana

Mönnun og vaktir fjarstýrðra virkjana


Skjalasnið tengisamnings

Skjalasnið tengisamnings


Verðskrá innmötunar raforku


Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar