RARIK mun koma til móts við þá viðskiptavini sem urðu fyrir rafmagnsleysi í hinu fordæmalausa illviðri sem brast á 10. desember 2019.
Ýmsir hafa orðið fyrir kostnaði vegna olíu- og gasnotkunar við framleiðslu á rafmagni eða við upphitun. Hægt er að sækja um endurgreiðslu á þeim kostnaði með því að fylla út eftirfarandi eyðublað.
Uppfært 25.05.2020:
Í maí 2020 hætti RARIK að taka við umsóknum um endurgreiðslur vegna rafmagnsleysisins í desember 2019.
Venju samkvæmt bætir RARIK tjón á rafbúnaði viðskiptavina sem verður vegna spennusveiflna í rafmagnstruflunum. Þeir sem hafa orðið fyrir slíku geta fyllt út eftirfarandi kvörtunareyðublað.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15