Haldinn verður opinn fundur um lokun hitaveitunnar á Seyðisfirði í félagsheimilinu Herðubreið, fimmtudaginn 12. október 2017.
Á fundinum mun Tryggvi Þór Haraldsson fara yfir stöðu veitunnar nú og fara yfir áform RARIK um að loka hitaveitunni fyrir árslok 2019. Magnús Ólafsson hjá ÍSOR mun halda erindi um jarðhitaleit á Seyðisfirði og Benedikt Guðmundsson hjá Orkustofnun mun fara yfir valkosti í upphitun húsa. Að lokum mun Þorvaldur Jóhannsson, fyrrum bæjarstjóri á Seyðisfirði, stýra pallborðsumræðum.
RARIK hættir rekstri fjarvarmaveitunnar á Seyðisfirði - 22.08.2017
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15