Mikill snjór er nú í fjöllum á Austurlandi. Snjór hefur m.a. hlaðist upp undir Borgarfjarðarlínu sem liggur frá Héraði til Borgarfjarðar eystri í Sandadal, í Sandaskörðum og yfir í Hólalandsdal og er vírinn þar sem hann er lægstur kominn niður fyrir 1,5 metra.
Fólk sem á leið um þetta svæði er vinsamlegast beðið um að sýna varkárni. Við bendum einnig á síma svæðisvaktar RARIK á Austurlandi, 528 9790.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15