RARIK býður gestum og gangandi á opið hús í nýrri starfsstöð fyrirtækisins við Larsenstræti 4 á Selfossi, þann 15. september frá klukkan 13:00 til 16:00. Þar mun gestum gefast tækifæri til að kynna sér nýjustu starfsstöð þekkingarfyrirtækisins RARIK sem er leiðandi afl í orkuskiptum á landsbyggðinni með rafdreifikerfi sínu.
Starfsfólk verður á staðnum til að sýna sérhæfð ökutæki og búnað, svara spurningum, fræða gesti um starfsemi fyrirtækisins og helstu áskoranir. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og eiga við okkur spjall um þau málefni sem brenna helst á ykkur í tengslum við raforkudreifingu. Við vekjum athygli á að ekki er nauðsynlegt að skrá sig og húsið er opið öllum. Léttar veitingar verða í boði.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15