ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Til að draga úr líkum á tjóni frá rafmagni

Því miður er rafmagnsleysi óhjákvæmilegur hluti af rekstri raforkukerfa. Sem dæmi má nefna að loftlínur eru útsettar fyrir óveðrum og strengir geta orðið fyrir hnjaski þegar grafið er í þá. Að jafnaði verða á hverju ári um 600 fyrirvaralaus tilvik þar sem rafmagnsleysi verður í dreifikerfi RARIK.

Þess vegna er mikilvægt að notendur geri ráð fyrir því að rafmagnsleysi geti orðið og séu undir það búnir. Sama má segja um skammvinnar spennubreytingar í raforkukerfinu. Slíkar spennubreytingar standa aðeins yfir í sekúndubrot og eiga raftæki að þola þannig sveiflur. Því miður er hins vegar allt of algengt að þau geri það ekki og af því hljótast tjón. 

 

Til að forðast tjón vegna rafmagnsleysis eða vegna skammvinnra spennubreytinga geta húseigendur gripið til einfaldra aðgerða sem geta skipt sköpum.

 

Spurt og svarað


Undirbúa þarf mannlaus hús fyrir hugsanlegt rafmagnsleysi

Þegar sumarhús er yfirgefið ætti að taka rafmagnstæki úr sambandi, einkum rafmagnstæki með viðkvæman rafeindabúnað. Undirbúið sumarhúsið vel fyrir veturinn en vatns­tjón í sum­ar­hús­um eru algengust á vet­urna þegar frýs í leiðslum, þær springa og þegar aftur þiðnar lek­ur vatnið um sum­ar­húsið. Þetta eru oft al­var­leg tjón þar sem lek­inn upp­götv­ast ekki fyrr en í næstu heim­sókn í bú­staðinn og þá getur vatnið hafa skemmt mikið út frá sér.

  • Ráðlegt er að tappa af vatnslögnum og salerni og setja frostlög í vatnslása  og vatnssalerni.
  • Mikilvægt er að skrúfa fyrir inntak heita og kalda neysluvatnsins og tæma viðtengd tæki t.d. með því að skrúfa frá einum eða fleiri vatnskrönum inn í húsinu þar til kerfið hefur tæmt sig.
  • Ef sumarhús er kynt á veturna, er mikilvægt að fá upplýsingar ef það verður rafmagns- og/eða heitavatnslaust. Þá þarf að bregðast við og gera húsið frostklárt. RARIK sendir í flestum tilfellum út tilkynningar um rafmagnsleysi sem fyrirtækið veit um, en það geta orðið bilanir, sérstaklega í sumarhúsahverfum sem fyrirtækið fær ekki upplýsingar um. Einnig geta neysluveitur sem húseigandi ber ábyrgð á bilað. Hægt er að fá upplýsingar um slíkar bilanir t.d. í gegnum öryggiskerfi, spennuleysisvara og fleiri slík úrræði. Breytingar á rafmagni eða heitavatnsrennsli geta orðið til þess að það kólnar hratt í húsi. Bilanir geta jafnframt orðið á kerfum í kjölfarið og vissara fyrir sumarhúsaeigendur að ganga úr skugga um að allt sé í lagi ef rafmagn hefur farið af eða orðið heitavatnslaust í einhvern tíma.

Tilkynningar um rafmagnsleysi og viðbrögð við þeim

RARIK sendir út tilkynningar um rafmagnsleysi með SMS skilaboðum og í tölvupósti til viðskiptavina sem hafa símanúmer og netfang skráð hjá okkur. Ef mögulegt er þá eru slíkar tilkynningar sendar viðskiptavinum þegar fyrirvaralaust rafmagnsleysi verður eða þegar búist er við rafmagnsleysi vegna vinnu við raforkukerfið. Til að fá slíkar tilkynningar þarf að skrá upplýsingar um símanúmer og netfang á Mínar síður, eða hafa samband við RARIK í síma 528 9000 og gefa upp símanúmer/netfang.

 

Mikilvægt er að bregðast við slíkum tilkynningum og grípa til viðeigandi ráðstafana, svo sem að taka viðvæm tæki úr sambandi og huga að því hvort rafmagn hafi komist aftur á  hús að truflun lokinni.


Aftengdu viðkvæm tæki þegar búist er við truflunum

Til að verja raftæki fyrir truflunum frá rafmagni er einfalt og öruggt ráð að taka þau úr sambandi þegar þau eru ekki í notkun. Ef tilkynnt hefur verið um rafmagnsleysi eða ef veðurútlit er slæmt eða von er á þrumuveðri er skynsamlegt að taka viðkvæm tæki úr sambandi, svo sem sjónvörp, tölvur, heita potta og rafeindastýrðan búnað.


GSM rafmagnsvöktun/spennuleysisvari er einfalt og ódýrt tæki sem setja má upp í neysluveitu

Rafmagnsvöktunarbúnaður er einfalt tæki sem setja má í samband við venjulegan heimilistengil og sendir húseiganda GSM boð ef rafmagn fer af eða kemur á. Þessi búnaður er gagnlegur ef mannlaust hús verður rafmagnslaust og gerir forráðamönnum þess mögulegt að bregðast við í tæka tíð. Venjuleg öryggiskerfi gefa einnig slíkar upplýsingar. Hægt er að fá rafmagnsvöktunarbúnað hjá söluaðilum á Íslandi eða erlendis frá (e. Power Failure Detector).


Yfirspennuvörn ver raftæki gegn skammvinnri spennuhækkun

Við truflanir í raforkukerfinu getur spenna hækkað talsvert í skamman tíma, eða í fáein sekúndubrot. Rétt hönnuð raftæki eiga að þola slík frávik en reynslan sýnir að alltof algengt er að þau geri það ekki. Sérstaklega er rafeindabúnaður viðkvæmur fyrir slíkum atvikum. Til að verja öll raftæki í neysluveitu má setja upp yfirspennuvörn í aðaltöflu neysluveitu, en það er einfaldur og tiltölulega ódýr búnaður. Athugið að löggiltur rafverktaki þarf að annast uppsetningu slíks búnaðar eins og á við um allar breytingar á aðaltöflu.


Undirspennuvörn ver raftæki gegn skammvinnri spennulækkun

Almennt þola raftæki betur að spenna lækki í skamman tíma, (í fáein sekúndubrot), heldur en spennuhækkun. Reynslan sýnir að sum tæki þola slíka spennulækkun samt ekki, t.d. viðkvæmur rafeindabúnaður. Til að verja raftæki í slíkum atvikum er hægt að setja undirspennuvörn í aðaltöflu neysluveitu, en það er einfaldur búnaður á hóflegu verði sem unnt er að fá löggiltan rafverktaka til að annast uppsetningu á. Hafðu hugfast að aðeins löggiltum rafverktökum er heimilt að gera breytingar á aðaltöflu.


Hvað skal gera þegar búast má við rafmagnstruflunum?

Þegar t.d. spáð er óveðri eða eldingaveðri og búast má við rafmagnstruflunum er ráðlegt að slökkva á þeim raf­magns­tækj­um, sem slökkva ekki á sér sjálf þegar rafmagni slær út og sem geta valdið tjóni þegar rafmagn kem­ur á að nýju. Þetta á meðal annars við um elda­vél­ar og fleiri hit­un­ar­tæki en einnig er ráðlegt að slökkva á viðkvæm­um tækj­um á borð við sjón­vörp. Þá hefur reynst mörgum vel að að eiga vasaljós að grípa til því farsímaljós eru fljót að tæma farsímarafhlöður enda símarnir orkufrekir. Minnum einnig á að rafmagnsleysi getur haft áhrif á fjarskipti og ýmsa þjónustu sem er háð rafmagni.


Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik