Vegna óvissu um framvindu Covid-19 faraldursins hefur RARIK ákveðið að fresta hitaveitudeginum á Höfn í Hornafirði, laugardaginn 4. september næstkomandi.
Með hitaveitudeginum stóð til að efna til fjölskylduskemmtunar fyrir íbúa, með blöndu af skemmtun og fræðslu, til að fagna því að vinnu við nýja Hitaveitu Hornafjarðar er að ljúka. RARIK mun í samráði við fulltrúa sveitarfélagsins huga að nýrri tímasetningu hitaveitudagsins þegar meiri fyrirsjáanleiki hefur komist á um þróun Covid-19 faraldursins hér á landi.
Greint verður frá tímasetningu nýs hitaveitudags hér á heimasíðu RARIK þegar hún liggur fyrir.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15