RARIK hefur á ný óskað eftir tilboðum í lagna- og jarðvinnu vegna stækkunar dreifikerfis hitaveitu fyrirtækisins í Hornafirði.
Þessi verkáfangi var áður boðinn út á vormánuðum 2020 en ekkert tilboð barst í verkið þá og því er þess nú freistað að koma verkinu aftur af stað með nýju útboði. Í millitíðinni hefur ný hitaveita RARIK verið tekin í notkun á Höfn og hús sem áður voru tengd fjarvarmaveitu RARIK fá nú heitt vatn um 20 km lögn sem RARIK lagði til Hafnar frá jarðhitasvæðinu á Hoffelli í Nesjum.
Þeir sem hyggjast taka þátt í þessu opna útboði þurfa að senda inn tilboð til RARIK með rafrænum hætti fyrir klukkan 14:00 þriðjudaginn 16 febrúar næstkomandi.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15