Útgefið 02.12.2024
Markmið
Jafnréttisstefnu RARIK er ætlað að stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu og virðingu allra á vinnustaðnum. Jafnréttisstefnan byggir á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Jafnréttisstefnuna skal endurskoða á þriggja ára fresti.
Það er stefna RARIK að fyllsta jafnréttis sé ávallt gætt í starfsemi fyrirtækisins, óháð kyni. RARIK hámarkar mannauð sinn með því að tryggja að allt starfsfólk njóti sömu tækifæra og kjara óháð kynferði og að öll séu metin á eigin verðleikum. RARIK leggur áherslu á að starfsfólk fyrirtækisins virði jafnréttissjónarmið í hvívetna og komi fram við hvert annað af virðingu.
Hvers konar mismunun á forsendum kynferðis er í andstöðu við jafnréttisstefnu RARIK og landslög.
Laun og önnur starfstengd kjör
Hjá RARIK fær starfsfólk greidd jöfn laun óháð kyni og njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Laun skulu ákveðin óháð kynferði og sömu mælikvarðar skulu notaðir fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Sömu viðmið óháð kynferði skulu höfð í huga við ákvörðun yfirvinnu eða annarra starfstengdra kjara eða réttinda. Komi í ljós launamunur á jafn verðmætum störfum skal hann leiðréttur ef ekki er hægt að rökstyðja hann á málefnalegum grundvelli gildandi kjarasamninga. Stjórnendur skuldbinda sig til að vinna að stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum í samræmi við kröfur jafnlaunakerfis, sjá jafnframt launastefnu RARIK.
Starfsmannaráðningar
Starfsfólk skal eiga jafna möguleika til allra starfa sem laus eru óháð kynferði. Leitast skal við að jafna kynjahlutföll innan starfshópa og við tilfærslu í starfi skal tryggt að starfsfólki sé ekki mismunað eftir kynferði. Þegar ráðið er í ný störf skal m.a. tekið tillit til kynjahlutfalls þannig að ekki halli á annað kynið.
Starfsþjálfun og endurmenntun
Allt starfsfólk skal njóta sömu möguleika til starfsþjálfunar, endur- og símenntunar sem eflir færni þeirra í starfi eða eykur starfsþróun þeirra. Þess skal gætt að mismuna ekki starfsfólki eftir kynferði við úthlutun verkefna og tækifæra til að axla ábyrgð, sem og þegar um framgang eða tilfærslu í störfum er að ræða. Sama gildir um starfs- eða vinnuhópa sem starfsfólk er skipað í.
Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
Skipulagi vinnufyrirkomulags skal haga með þeim hætti að starfsfólki sé gert kleift að sinna skyldum sínum gagnvart fjölskyldu samhliða vinnu sinni óháð kynferði. Fæðingar- og foreldraorlof, eða aðrar aðstæður tengdar meðgöngu, barnsburði og ættleiðingu, hafa ekki neikvæð áhrif á ákvarðanir um framgang í starfi, starfsþróun og endurmenntun, uppsögn, vinnuaðstæður og fleiri slíka þætti sem taldir eru upp í 19. gr. jafnréttislaga. Þá ber að leitast við að halda yfirvinnu starfsfólks innan eðlilegra marka.
Kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni
RARIK líður ekki fordóma, kynbundna áreitni eða einelti – sbr. ST-0496 um aðgerðaráætlun RARIK gegn einelti, ofbeldi, kynbundinni og kynferðislegri áreitni.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15